Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Sparisjóður Vestmannaeyja

Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Vestmannaeyja þann 10. desember 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.

Stofnfé sparisjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu var 1.004,5 m.kr. og var fjöldi stofnfjáraðila 85. Heildareignir sjóðsins voru 14.716 mkr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var um 16,8 %.

Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu og fer hún með 55,3% af stofnfé sjóðsins.

Þrír af fimm stjórnarmönnum eru skipaðir af Bankasýslu ríkisins. Þeir eru Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður, Stefán S. Guðjónsson og Ólafur H. Guðgeirsson  


Tengdar fréttir

6.5.2013

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir starfsárið 2012 var haldinn þann 23. apríl sl.