Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

30.12.2011

Nýr forstjóri Bankasýslu ríkisins

Stjórn Bankasýslu ríkisins hefur ráðið Jón Gunnar Jónsson sem nýjan forstjóra Bankasýslunnar.

7.12.2011

Vinnuferli hæfnisnefndar vegna ráðningar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins

Hæfnisnefnd vegna ráðningar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins hefur það hlutverk að meta með faglegum hætti hæfni þeirra sem sóttu um starfið og aðstoða þannig stjórn Bankasýslunnar við ákvörðun um ráðningu

5.12.2011

Starf forstjóra Bankasýslu ríkisins

Umsóknarfrestur um starf forstjóra Bankasýslu ríkisins rann út 27. nóvember sl. Alls bárust 17 umsóknir um starfið en 4 umsækjendur hafa dregið umsókn sína til baka.

25.11.2011

Breyting á hæfnisnefnd Bankasýslunnar

Benedikt Árnason, hagfræðingur hefur tekið sæti í hæfnisnefnd Bankasýslunnar í stað Tryggva Pálssonar. 

18.11.2011

Stjórn Bankasýslunnar skipar hæfnisnefnd til að meta umsækjendur um starf forstjóra

Dr. Ásta Bjarnadóttir, vinnu- og skipulagssálfræðingur, hefur verið skipuð formaður hæfnisnefndar vegna ráðningar á forstjóra Bankasýslu ríkisins

17.11.2011

Elín Jónsdóttir lætur af störfum

Elín Jónsdóttir lætur af störfum forstjóra Bankasýslu ríkisins 18. nóvember 2011 en hún sagði starfi sínu lausu í byrjun ágúst.

17.11.2011

Hluthafafundur Arion banka

Hluthafafundur var haldinn í Arion banka hf. þann 27. október 2011.

11.11.2011

Starf forstjóra laust til umsóknar

Stjórn Bankasýslu ríkisins auglýsir laust til umsóknar starf forstjóra Bankasýslu ríkisins

3.11.2011

Ný stjórn Bankasýslu ríkisins skipuð

Fjármálaráðherra hefur í dag skipað nýja stjórn Bankasýslu ríkisins.

27.10.2011

Páll tekur ekki við stöðu forstjóra

Páll Magnússon, stjórnsýslufræðingur og bæjarritari í Kópavogi, hefur tilkynnt að hann muni ekki taka við stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins.

27.10.2011

Afsögn stjórnar Bankasýslunnar

Í bréfi sem stjórnarmenn Bankasýslu ríkisins rituðu fjármálaráðherra 24. október óskuðu stjórnarmenn eftir að verða leystir frá störfum

13.10.2011

Rökstuðningur með ráðningu forstjóra Bankasýslu ríkisins

Vegna opinberrar umfjöllunar um ráðningu í stöðu forstjóra stofnunarinnar hefur stjórn Bankasýslu ríkisins ákveðið að birta svar sitt við bréfi fjármálaráðherra dags. 6. október sl. þar sem óskað er upplýsinga um ráðninguna.

30.9.2011

Páll Magnússon ráðinn forstjóri Bankasýslunnar

Páll Magnússon bæjarritari Kópavogsbæjar hefur verið ráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins.

23.9.2011

Umsækjendur um stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins

Umsóknarfrestur um stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins er útrunninn. Ráðningarferli er á lokastigi.

16.9.2011

Sparisjóður Norðfjarðar - söluferli

Fyrirtækjaráðgjöf H.F. verðbréfa hefur til sölumeðferðar, fyrir hönd stjórnar í umboði stofnfjáreiganda, allt stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar.

1.9.2011

Sparisjóður Svarfdæla - Söluferli

Fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hf. hefur til sölumeðferðar, fyrir hönd Bankasýslu ríkisins, 90% stofnfjárhlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla. 

22.8.2011

H.F. Verðbréf ráðgjafi við sölu á hlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla

Bankasýsla ríkisins hefur ráðið H.F. Verðbréf sem ráðgjafa við sölu á 90% eignarhlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla.

12.8.2011

Hlutur ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla í opið söluferli

Bankasýsla ríkisins hefur ákveðið að setja 90% hlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla í opið söluferli.

4.8.2011

Staða forstjóra Bankasýslu ríkisins laus til umsóknar

Elín Jónsdóttir forstjóri Bankasýslu ríkisins hefur sagt starfi sínu lausu og verður staðan auglýst laus til umsóknar um næstu helgi.

15.7.2011

Lokað vegna sumarleyfa

Bankasýsla ríkisins verður lokuð vegna sumarleyfa frá mánudeginum 11. júlí til og með 29. júlí næstkomandi.

13.7.2011

Skýrsla Bankasýslu ríkisins 2011

Bankasýslu ríkisins ber lögum samkvæmt að skila árlegri skýrslu um starfsemi sína og nú liggur fyrir skýrsla ársins 2011. Í skýrslunni er greint frá starfsemi Bankasýslunnar undanfarið ár og fjallað um þau verkefni sem framundan eru.

24.5.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla fyrir starfsárin 2009 og 2010

Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla fyrir starfsárin 2009 og 2010 var haldinn þriðjudaginn 17. maí 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam um 135 milljónum króna en tap var á rekstrinum árið 2009 og nam það um 270 milljónum króna.

4.5.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis fyrir starfsárin 2009 og 2010

Aðalfundur Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis fyrir starfsárin 2009 og 2010 var haldinn miðvikudaginn 13. apríl 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam um 510 milljónum króna en tap var á rekstrinum árið 2009 og nam það 373 milljónum króna.

4.5.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Norðfjarðar vegna starfsársins 2010

Aðalfundur Sparisjóðs Norðfjarðar vegna starfsársins 2010 var haldinn fimmtudaginn 7. apríl 2011.
Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam um 87 milljónum króna.

4.5.2011

Framhaldsaðalfundur Íslandsbanka

Framhaldsaðalfundur Íslandsbanka var haldinn þann 3. maí 2011 en stjórnarkjöri hafði áður verið frestað fram til þessa fundar.

29.4.2011

Samningur Bankasýslu ríkisins við stjórn Landsbankans

Eitt af verkefnum Bankasýslu ríkisins er að gera samninga um almenn og sértæk markmið í rekstri þeirra fjármálafyrirtækja þar sem stofnunin skipar meirihluta stjórnarmanna.

29.4.2011

Aðalfundur Landsbankans fyrir árið 2010

Aðalfundur Landsbankans fyrir starfsárið 2010 var haldinn 28. apríl 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam 27,2 milljörðum króna.

15.4.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Bolungarvíkur fyrir árið 2010

Aðalfundur Sparisjóðs Bolungarvíkur fyrir starfsárið 2010 var haldinn föstudaginn 8. apríl 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam um 1,9 milljarði króna.

11.4.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir árið 2010

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir starfsárið 2010 var haldinn fimmtudaginn 31. mars 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam 900 milljónum króna.

31.3.2011

Aðalfundur Íslandsbanka fyrir árið 2010

Aðalfundur Íslandsbanka hf. fyrir starfsárið 2010 var haldinn þriðjudaginn 29. mars 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam 29,4 milljörðum króna.

25.3.2011

Aðalfundur Arion banka fyrir árið 2010

Aðalfundur Arion banka fyrir starfsárið 2010 var haldinn 24. mars 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam 12,6  milljörðum króna.

21.3.2011

Afstaða stjórnar Bankasýslu ríkisins til launaákvarðana stjórna Arion banka og Íslandsbanka.

Stjórn Bankasýslu ríkisins (BR) hefur tekið til umfjöllunar ákvarðanir um laun forstjóra Arion banka og Íslandsbanka og hefur í því sambandi óskað eftir og fengið greinargerðir stjórnarmanna BR í bönkunum um atkvæðagreiðslu þeirra og grundvöll ákvörðunar við ákvörðun launa forstjóra bankanna á síðasta ári.

5.3.2011

Sameining Spkef og Landsbankans

Fyrirhugaður samruni Spkef sparisjóðs og Landsbankans sem tilkynnt hefur verið um mun hafa veruleg áhrif á sparisjóðakerfið í heild enda vegur Spkef sparisjóður þungt í heildarefnahag sparisjóðakerfisins.

23.2.2011

Breytingar á stjórn Bankasýslu ríkisins

Fjármálaráðherra hefur skipað Steinunni Kristínu Þórðardóttur, rekstrarhagfræðing sem nýjan stjórnarmann í Bankasýslu ríkisins og Jón Sigurðsson, lögmann, til vara.

7.1.2011

Tilnefningar í stjórnir sparisjóða

Bankasýslu ríkisins hefur verið falið að fara með eignarhlut ríkissjóðs í Sparisjóði Bolungarvíkur, Sparisjóði Svarfdæla, Sparisjóði Vestmannaeyja og Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis. Auk þess mun Bankasýslan fara með eignarhlut ríkissjóðs í Spkef sparisjóði þegar fjárhagslegri endurskipulagningu hans verður lokið. Af hálfu Bankasýslu ríkisins er óskað eftir tilnefningum í stjórnir ofangreindra sjóða.

5.1.2011

Eignarhlutir ríkisins í Sparisjóðum Svarfdæla og Þórshafnar

Í dag, 5. janúar 2011 hefur Bankasýslu ríkisins verið falið af fjármálaráðherra að fara með eignarhluti ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla og Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis.

4.1.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir starfsárið 2009 var haldinn 21. desember 2010. Á fundinum kom fram að tap af starfsemi sjóðsins árið 2009 nam 1.059 milljónum króna. Ákveðið var að greiða ekki út arð árið 2010 vegna starfsemi ársins 2009.