Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja - Fréttir

4.1.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir starfsárið 2009 var haldinn 21. desember 2010.

Bankasýsla ríkisins tók þann 16. desember við 55,3% eignarhlut í Sparisjóði Vestmannaeyja. Mæltist Bankasýslan til þess að núverandi stjórn sæti áfram þar til stofnuninni hefur gefist færi á að fara yfir stjórnarskipan. Stjórn sparisjóðsins er því óbreytt og hana skipa nú Arnar Sigurmundsson, Haukur Jónsson, Helgi Bragason, Ragnar Óskarsson og Þór Í. Vilhjálmsson. Varamenn eru Elliði Vignisson, Kristín Sigurðardóttir, Magnús Kristinsson, Stefán Jónasson og Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir.

Á fundinum kom fram að tap af starfsemi sjóðsins árið 2009 nam 1.059 milljónum króna. Ákveðið var að greiða ekki út arð árið 2010 vegna starfsemi ársins 2009.

Fundurinn ákvað að laun stjórnarmanna verði óbreytt kr. 58.500 á mánuði fyrir árið 2010, en laun stjórnarformanns verði tvöföld laun stjórnarmanns. Varamenn fái greiddar kr. 14.625 fyrir hvern setinn fund.

Endurskoðunarfélag var kosið Deloitte hf.

Nánari upplýsingar veitir Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins, sími 550-1700 / 856-5540