Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Páll Magnússon ráðinn forstjóri Bankasýslunnar - Fréttir

30.9.2011

Páll Magnússon ráðinn forstjóri Bankasýslunnar

Páll Magnússon bæjarritari Kópavogsbæjar hefur verið ráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins. Hann tekur við starfinu af Elínu Jónsdóttur, sem gegnt hefur starfi forstjóra frá því að stofnunin hóf störf í ársbyrjun 2010.

Bankasýsla ríkisins er ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármálaráðherra. Stofnunin fer með eignarhluti ríkisins í fjármálastofnunum.

Páll er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá Háskóla Íslands og hefur gegnt stöðu bæjarritara hjá Kópavogsbæ og verið sviðsstjóri stjórnsýslusviðs bæjarins frá árinu 2006. Hann hefur jafnframt verið staðgengill bæjarstjóra. Páll var aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra á árunum 1999-2006, sat í stjórn Landsvirkjunar árin 2007-2011, þar af sem stjórnarformaður í eitt ár. Þá var hann varaformaður útvarpsráðs og síðar stjórnar RÚV ohf. um fimm ára skeið.

Páll er kvæntur Aðalheiði Sigursveinsdóttur og eiga þau tvo syni.

Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins,
í síma 891-8913