Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Aðalfundur Arion banka fyrir starfsárið 2012 - Fréttir

16.4.2013

Aðalfundur Arion banka fyrir starfsárið 2012

Aðalfundur Arion banka fyrir starfsárið 2012 var haldinn þann 21. mars 2013.

Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam 17,1 milljarði króna. Samþykkt var að greiða ekki út arð vegna ársins 2012.

Breytingar voru gerðar á samþykktum bankans.

Á fundinum voru eftirfarandi aðilar kosnir í stjórn: Agnar Kofoed-Hansen, sem er fulltrúi Bankasýslunnar, Freyr Þórðarson, Guðrún Johnsen, Jón G. Briem, Måns Höglund, Monica Caneman og Þóra Hallgrímsdóttir, sem eru fulltrúar Kaupskila ehf., sem fer með 87,0% eignarhlut. Varamenn voru kjörnir Kirstín Þ. Flygenring, sem er fulltrúi Bankasýslunnar, Björg Arnardóttir, Böðvar Jónsson, Guðrún Björnsdóttir, Hrönn Ingólfsdóttir, Ólafur Árnason og Ólafur Örn Svansson, sem eru fulltrúar Kaupskila ehf.

Á fundinum var samþykkt óbreytt þóknun til stjórnarmanna en fulltrúi Bankasýslu ríkisins sat hjá við ákvörðunina. Starfskjarastefna fyrri árs var samþykkt óbreytt og Ernst & Young ehf. voru kosnir endurskoðendur bankans.