Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Aðalfundur Íslandsbanka - Fréttir

27.6.2013

Aðalfundur Íslandsbanka

Aðalfundur Íslandsbanka fyrir starfsárið 2012 var haldinn þann 18. apríl sl.

Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam 23,4 milljörðum króna. Samþykkt var að greiða út 3,0 milljarða króna arð vegna rekstrarásins 2012, en að öðru leyti bætist hagnaðurinn við eigið fé bankans.

Fram kom að stjórn bankans muni mögulega boða til sérstaks hluthafafundar síðar á árinu þar sem lagðar verði fram tillögur um greiðslu arðs vegna tekjuafgans fyrri rekstrarára.

Breytingar voru gerðar á samþykktum bankans á þann veg að stjórn félagsins skuli skipuð sjö mönnum að minnsta kosti tveimur til vara.Formann skal kjósa sérstaklega en stjórn skiptir að öðru leyti með sér störfum.

Á fundinum voru eftirfarandi aðilar kosnir í stjórn: Friðrik Sophusson, stjórnarformaður, María E. Ingvadóttir, sem er fulltrúi Bankasýslu ríkisins, Árni Tómasson, Neil Graeme Brown, Daniel Levin, John E. Mack og Marianne Økland. Varamenn voru kjörnir Þóranna Jónsdóttir, sem er fulltrúi Bankasýslu ríkisins, og Jón Eiríksson.

Á fundinum var samþykkt óbreytt þóknun til stjórnarmanna og starfskjarastefna var samþykkt óbreytt frá fyrra ári. Bankasýsla ríkisins sat hjá við atkvæðagreiðslu um starfskjarastefnu, en greiddi öllum öðrum tillögum atkvæða.  Deloitte hf. var kosið endurskoðunarfélag bankans til næstu tveggja ára.