Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Hluthafafundur Arion banka hf. 12. febrúar 2018 - Fréttir

14.2.2018

Hluthafafundur Arion banka hf. 12. febrúar 2018

Hluthafafundur Arion banka hf. var haldinn þann 12. febrúar 2018.

Á fundinum greiddi Bankasýsla ríkisins atkvæði gegn tillögu um breytingar á samþykktum félagsins, um heimild bankans til kaupa á eigin hlutum. Lét stofnunin einnig færa eftirfarandi bókun í fundargerð:

Bankasýsla ríkisins greiðir atkvæði gegn tillögu um kaup á eigin bréfum. Telur stofnunin að tillagan sé ekki í samræmi við ákvæði eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki um jafnræði hluthafa. 

Á fundinum greiddi stofnunin einnig atkvæði gegn tillögu um skilyrta arðgreiðslu af hálfu bankans og lét einnig færa sérstaka bókun í fundargerð:

Bankasýsla ríkisins greiðir atkvæði gegn tillögu um arðgreiðslu. Í fyrsta lagi telur stofnunin að arðgreiðslan eigi að koma strax til framkvæmda. Í öðru lagi telur stofnunin að arðgreiðslan eigi ekki að vera háð viðskiptum á milli hluthafa bankans. Telur stofnunin að tillagan sé ekki í samræmi við ákvæði eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki um jafnræði hluthafa og vandaða stjórnarhætti.

Upplýsingar um tillögur og niðurstöðu atkvæðagreiðslu fundarins má sjá á eftirfarandi slóð:https://newsclient.omxgroup.com/cdsPublic/viewDisclosure.action?disclosureId=822955&lang=is 

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, í síma 550-1701.