Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum - Fréttir

22.1.2020

Bankasýsla ríkisins leitar að einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum

Bankasýslan fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum samkvæmt lögum nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins. Fer stofnunin með 100% eignarhlut í Íslandsbanka hf., 98,2% eignarhlut í Landsbankanum hf. og 49,5% eignarhlut í Sparisjóði Austurlands hf.

Stjórn Bankasýslu ríkisins skipar sérstaka valnefnd, sbr. ákvæði 7. gr. laga nr. 88/2009, sem tilnefnir einstaklinga fyrir hönd ríkisins í stjórnir fjármálafyrirtækja. Bankasýsla ríkisins óskar formlega eftir tilnefningum valnefndar um stjórnarmenn fyrir stjórnarkjör í hlutaðeigandi fjármálafyrirtækjum.

Samkvæmt fyrrgreindu lagaákvæði styðst valnefnd við starfsreglur við mat á hæfni, menntun og reynslu einstaklinga sem til greina koma til setu í stjórnum fjármálafyrirtækja fyrir hönd ríkisins. Starfsreglurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Bankasýslu ríkisins.

Við val á einstaklingum sem tilnefndir eru í stjórnir fjármálafyrirtækja tekur valnefndin mið af yfirsýn, þekkingu og reynslu viðkomandi í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfsháttum fjármálafyrirtækja. Nefndin leitast við að það sitji sem næst jafnmargar konur og karlar í stjórnum fjármálafyrirtækja. Þá er jafnframt miðað að því að þekking og reynsla stjórnarmanna sé fjölbreytt.

Við mat á hæfi einstaklinga lítur valnefndin meðal annars til eftirfarandi atriða:

  • Yfirgripsmikil reynsla af rekstri og þekking á íslensku atvinnulífi.
  • Þekking á rekstri banka og starfsemi fjármálafyrirtækja.
  • Reynsla af alþjóðlegum viðskiptum.
  • Sérþekking á sviði upplýsingatækni.
  • Sérþekking á sviði áhættustefnu s.s. markaðs- og lánsáhættu.
  • Traust og gott orðspor.
  • Leiðtogahæfileikar.
  • Reynsla af stjórnun og stefnumótun.
  • Fjárhagslegt sjálfstæði.
  • Menntun sem nýtist í starfi.

Einstaklingar þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði skv. lögum nr. 161/2002

  • Vera búsettir í einu ríki af eftirfarandi; (a) aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, (b) aðili að stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjar eða (c) aðili að Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD).
  • Vera lögráða, hafa gott orðspor og hafa ekki á síðustu fimm árum verið úrskurðaðir gjaldþrota.
  • Hafa ekki í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm á síðustu tíu árum fyrir refsiverðan verknað.
  • Geta varið fullnægjandi tíma í störf sín í þágu viðkomandi fjármálafyrirtækis.
  • Mega hvorki eiga sæti í stjórn annars eftirlitsskylds aðila skv. lögum nr. 161/2002 eða aðila sem er í nánum tengslum við hann né vera starfsmenn eða endurskoðendur annars eftirlitsskylds aðila eða aðila í nánum tengslum við hann.
  • Ekki sitja í fleiri félögum en fjórum, að meðtöldu fjármálafyrirtækinu. Ef viðkomandi sinnir stjórnarsetu og er samhliða framkvæmdarstjóri félagsins er sú stjórnarseta einungis heimil ásamt setu í fjármálafyrirtækinu.

Skilyrði samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitisns nr. 9/2016

  • Stjórnarmönnum viðkomandi fjármálafyrirtækis er ekki heimilt að vera starfsmenn eða stjórnarmenn hjá þeim sem fara með yfirráð yfir öðrum viðskiptabönkum eða sparisjóðum.
  • Stjórnarmönnum viðkomandi fjármálafyrirtækis er ekki heimilt að vera starfsmenn eða stjórnarmenn hjá öðrum viðskiptabönkum og sparisjóðum eða dótturfélögum þeirra.
  • Makar stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra framangreindra aðila eða skyldir þeim í beinan legg eða fyrsta legg til hliðar er óheimilt að sitja í stjórn viðkomandi fjármálafyrirtækis. Það sama gildir ef viðkomandi sinnir reglubundið hagsmunagæslu eða ráðgjafastörfum fyrir framangreinda aðila eða hefur meirihluta tekna sinna af viðskiptum við þá.

Ennfremur er vakin athygli á  ákvæði 29 gr. a. laga nr. 161/2002 sem varðar mögulega hagsmunaárekstra í tengslum við lánveitingar.

Stjórnarmenn fjármálafyrirtækja þurfa að gangast undir og standast hæfismat fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, sbr. reglur nr. 150/2017 um framkvæmd hæfismats framkvæmdarstjóra og stjórnarmanna fjármálafyrirtækja.

Áhugasamir einstaklingar sem telja sig uppfylla framangreind skilyrði eru hvattir til að senda ferilskrár og kynningarbréf ásamt upplýsingum um ofangreind atriði til valnefndar Bankasýslu ríkisins á netfangið valnefnd@bankasysla.is. Óskað er eftir að umbeðnar upplýsingar berist fyrir 29. janúar nk. Þeir einstaklingar, sem sent hafa ferilsskrár sínar eða boðið sig fram til stjórnarsetu með öðrum hætti fyrir 1. júní 2019, eru beðnir um að endurnýja áhuga sinn með pósti til valnefndar ef þeir gefa áfram kost á sér til setu í stjórnum fjármálafyrirtækja.

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, sími 550-1700.

Um Bankasýslu ríkisins

Bankasýsla ríkisins er sérstök ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðherra og fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma.