Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Bankasýsla fagnar athugun Fjármálaeftirlits - Fréttir

12.4.2022

Bankasýsla fagnar athugun Fjármálaeftirlits

 

Bankasýsla ríkisins sendi bréf til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands í dag.

Í bréfinu fagnar Bankasýsla ríkisins athugun Fjármálaeftirlitsins á tilteknum þáttum tengdum útboði og starfsháttum söluráðgjafa í sölumeðferð á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka enda hefur stofnunin engar heimildir til eftirgrennslan eða athugunar á þeim þætti söluferlisins.

Í bréfinu er undirstrikað mikilvægi þess að skapa traust og tiltrú á sölumeðferð á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka.  Einnig segir að stofnunin bjóði fram alla sína aðstoð og upplýsingar til að varpa nánara ljósi á útboðið, sé eftir því óskað.

Sérstök athygli er vakin á því í bréfinu, í tengslum við athugasemdir um markaðsmisnotkun, að á hluthafafundi Íslandsbanka þann 17. mars sl. var ákveðin arðgreiðsla sem nam 5,95 kr. á hlut. Arðleysisdagur var þann 18. mars sem skýrir að langmestu þá verðlækkun sem varð fyrir útboðið þann 22. mars sl.

Tengill á bréf.

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson, forstjóri í síma 550-1701