Eignarhlutir ríkisins í Sparisjóðum Svarfdæla og Þórshafnar - Fréttir
5.1.2011
Eignarhlutir ríkisins í Sparisjóðum Svarfdæla og Þórshafnar
Í dag, 5. janúar 2011 hefur Bankasýslu ríkisins verið falið af fjármálaráðherra að fara með eignarhluti ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla og Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis. Um er að ræða 90% stofnfjárhlut í Sparisjóði Svarfdæla og 75,9% stofnfjárhlut í Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis.
Nánari upplýsingar veitir Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins, sími 550-1700/856-5540