Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Bankasýsla ríkisins

Bankasýsla ríkisins er eignarhaldsfélag ríkisins á fjármálamarkaði og fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum meðan á uppbyggingu og endurreisn fjármálakerfisins stendur. Markmiðið er að umsýsla eignarhluta verði fagleg og traust.

Bankasýsla ríkisins 

Bankasýsla ríkisins er ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármálaráðherra. Hún var stofnuð með lögum nr. 88/2009 sem tóku gildi í ágúst 2009 og tók stofnunin til starfa í janúar 2010.

Bankasýsla ríkisins fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma, og leggur þeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimilda í fjárlögum.

Bankasýslu ríkisins er í starfsemi sinni ætlað að leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði, tryggja gagnsæi í allri ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiðlun til almennings.


Stjórnarseta

Hefur þú áhuga á að sitja fyrir hönd ríkisins í stjórn banka eða sparisjóða sem ríkið á eignarhlut í?
Gefðu kost á þér með því að senda ferilskrá með tölvupósti á netfangið valnefnd@bankasysla.is sem valnefnd Bankasýslunnar mun hafa aðgang að næst þegar velja þarf nýja stjórnarmenn.