Vegna aðalfunda 2014 - Fréttir
26.2.2014
Vegna aðalfunda 2014
Bankasýsla ríkisins vekur athygli á því að aðilar sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til setu í stjórnum þeirra fjármálafyrirtækja sem stofnunin fer með eignarhluti í geta skilað inn ferilskrá sinni hér á heimasíðu stofnunarinnar eða sent ferilskrá til valnefndar stofnunarinnar á netfangið valnefnd@bankasysla.is.
Valnefndin hefur það hlutverk að tilnefna aðila fyrir hönd ríkisins til setu í bankaráðum eða stjórnum fyrirtækja á forræði Bankasýslu ríkisins. Stjórn stofnunarinnar óskar formlega eftir tilnefningum valnefndar um nýja stjórnarmenn fyrir stjórnarkjör í hlutaðeigandi bankaráðum eða stjórnum verði breytingar á stjórnarmönnum.
Valnefndin styðst við starfsreglur sem m.a. snúa að hæfisskilyrðum stjórnarmanna. Tekur nefndin m.a. mið af yfirsýn, þekkingu og reynslu í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfshætti fjármálafyrirtækja. Aðili, sem valnefndin tilnefnir sem stjórnarmann í fjármálafyrirtæki, skal jafnframt uppfylla hæfisskilyrði 52. greinar laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.