Kosning bankaráðs Landsbankans hf. á framhaldsaðalfundi - Fréttir
25.4.2016
Kosning bankaráðs Landsbankans hf. á framhaldsaðalfundi
Aðalfundi Landsbankans hf. sem fram fór fimmtudaginn 14. apríl sl. var framhaldið föstudaginn 22. apríl. Eitt mál var á dagskrá fundarins, kosning bankaráðs, og voru eftirtaldir einstaklingar kjörnir í bankaráð Landsbankans hf.:
Aðalmenn:
Helga Björk Eiríksdóttir, formaður
Berglind Svavarsdóttir
Danielle Pamela Neben
Einar Þór Bjarnason
Hersir Sigurgeirsson
Jón Guðmann Pétursson
Magnús Pétursson
Varamenn:
Ásbjörg Kristinsdóttir
Samúel Guðmundsson
Á fyrsta fundi nýs bankaráðs sama dag var Magnús Pétursson kjörinn varaformaður þess.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, í síma 550-1700.