Hluthafafundur Arion banki hf. - Fréttir
14.12.2016
Hluthafafundur Arion banki hf.
Hluthafafundur í Arion banka hf. var haldinn þann 9. desember sl.
Eitt mál var á dagskrá fundarins sem var kosning um breytingar á samþykktum bankans. Var tillagan samþykkt einróma af hálfu hluthafa.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, í síma 550-1700.