Bankasýslan leitar eftir einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum - Fréttir
27.2.2017
Bankasýslan leitar eftir einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum
Bankasýslan leitar eftir einstaklingum til stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum.
Bankasýslan fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum samkvæmt lögum nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins.
Fer stofnunin með 100,0% eignarhlut í Íslandsbanka hf., 98,2% í Landsbankanum hf., 49,5% eignarhlut í Sparisjóði Austurlands hf. og 13,0% eignarhlut í Arion banka hf.
Stjórn Bankasýslu ríkisins skipar sérstaka valnefnd sem tilnefnir einstaklinga fyrir hönd ríkisins í stjórnir fjármálafyrirtækja.
Áhugasamir einstaklingar sem uppfylla hæfisskilyrði geta sent inn ferilskrár á netfangið valnefnd@bankasysla.is eigi síðar en 3. mars nk.