Áhugasamir ráðgjafar - Fréttir
12.2.2021
Áhugasamir ráðgjafar
Frestur til að skila inn yfirlýsingu varðandi áhuga á því að vera (a) sjálfstæður fjármálaráðgjafi og/eða (b) söluráðgjafi Bankasýslu ríkisins - í tengslum við alþjóðlegt frumútboð á eignarhlutum í Íslandsbanka rann út í dag.
Þátttaka var góð og skiluðu 24 aðilar inn yfirlýsingu. Stofnunin mun nú fara yfir þær og hefja næstu skref við val á ráðningu fjármála- og söluráðgjafa.
Sjá má nánari upplýsingar, m.a. nöfn og yfirlýsingar aðila, á eftirfarandi vefsíðu:
21366 - Fjármálaráðgjafi og umsjónaraðili með sölu Íslandsbanka /Independent financial advisor and underwriters for ISFI | Ríkiskaup (rikiskaup.is)