Ráðning á sjálfstæðum fjármálaráðgjafa - Fréttir
5.3.2021
Ráðning á sjálfstæðum fjármálaráðgjafa
Bankasýsla ríkisins hefur ráðið STJ Advisors Group Limited („STJ") sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa vegna alþjóðlegs frumútboðs á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka hf.
STj er einn af leiðandi sjálfstæðum ráðgjöfum á sviði útboða á hlutabréfum í Evrópu, sjá nánari upplýsingar um STJ á heimasíðu þeirra, www.stjadvisors.com
Sjö aðilar gáfu kost á sér með áhugayfirlýsingum til að verða sjálfstæður fjármálaráðgjafi.
STJ hefur þegar hafið störf.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Jónsson, forstjóri, í síma 550-1701.