Úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál - Fréttir
14.4.2023
Úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál
Þann 12. apríl sl. birti úrskurðarnefnd um upplýsingamál úrskurð nr. 1136/2023 frá 29. mars sl.
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að gögnum í vörslu Bankasýslu ríkisins sem innihéldu lista yfir kaupendur sem keyptu hlutabréf í Íslandsbanka hf. í júní 2021 fyrir hærri upphæð en 1.001.088 kr. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin hefðu að geyma upplýsingar sem undirorpnar væru sérstakri þagnarskyldu samkvæmt 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 151/2002, og því næði upplýsingaréttur kæranda ekki til gagnanna.
Sjá tengil:
Nánari upplýsingar gefur Jón G. Jónsson, forstjóri, í síma 550-1701.