Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Vinnubrögð Íslandsbanka vonbrigði - Fréttir

26.6.2023

Vinnubrögð Íslandsbanka vonbrigði

Bankasýsla ríkisins lýsir yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka við útboð á 22,5% eignarhlut ríkisins í bankanum þann 22. mars 2022 í ljósi þess sem fram kemur í nýgerðri sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. 
 
Íslandsbanki hefur með sáttinni gengist við því að hafa gerst brotlegur við ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga og laga um fjármálafyrirtæki og er ljóst að misbrestur á fylgni bankans við lög og reglur er til þess fallinn að rýra traust almennings til fjármálafyrirtækja. Bankasýslan lítur málið alvarlegum augum, en stofnunin fer enn með 42,5 % eignarhlut í Íslandsbanka og verulega hagsmuni ríkisins í öðrum fjármálafyrirtækjum. 
 
Bankasýsla ríkisins hefur ákveðið að fara fram á að boðað verði til hluthafafundar í Íslandsbanka þar sem stjórn og stjórnendur bankans geri grein fyrir málinu og þeim ráðstöfunum sem gripið verður til í því skyni að endurvekja traust.